Hæ vinkonur og takk fyrir síðast ! Klikkað gaman

Hvað finnst ykkur um að við förum saman á jólahlaðborð og tökum verri helmingana með ?
Ég ætla í Perluna í ár og ákvað að athuga hvort að einhver fílingur sé fyrir því að við förum saman

Hvað segiði um það ? Og hvað segið þið um fyrstu helgina í desember föstudagurinn 4. des. eða laugardagurinn 5. des ?
Ég ætlaði þá að fara að panta borð sem fyrst áður en það verður uppselt. Ég á alls ekki von á að allar hafi áhuga á þessu en einhverjar verða heitar

Jólahlaðborð Perlunnar
Hið óviðjafnanlega jólahlaðborð Perlunnar hefst 19. nóvember. Það
borgar sig að panta borðið strax — enda eitt vinsælasta jólahlaðborð
landsins.
Verð: 7.890 kr. — Tilboð mánudaga til miðvikudags: 6.890 kr.
Þar má meðal annars finna:
FORRÉTTIR
Villibráðasúpa,
kavíar, reyktur lax, graflax, paté, andalifrar-terrine, sveitapaté,
lifrarkæfa, sjávarréttasalat, rækjur, maríneraður hörpufiskur, síld,
heitreyktur silungur, kalkúnasalat, skinku salat, grísasulta,
AÐALRÉTTIR
Purusteik,
grísasteik, drottningar-skinka, hamborgarhryggur, reykt grísalæri,
kalkúnabringur, koníaks-eldsteiktar nautalundir, hangikjöt,
appelsínuönd.
EFTIRRÉTTIR
Ris á l'allemande, fromage, konfektkökur, ensk jólakaka, marengskaka, súkkulaðiterta
MEÐLÆTI
Brúnaðar
kartöflur, kartöflusalat, kartöflugratín, eplasalat, hrásalat, sultur,
ítalskt salat, Chantyllysósa, brúnkál, rauðkál, rúnstykki , rúgbrauð,
smjör, berjasósa, graflaxsósa, Taffel sinnep.